Samstarf

Búnaður sem við stöndum á bak við.

Við tökum að okkur umboð fyrir framleiðendur sem við þekkjum af eigin raun. Þá kemur búnaðurinn, uppsetningin og þjónustan frá sama aðila — og þú talar við sama fólkið eftir að búnaðurinn er kominn í gang.

Hvað fylgir

Frá vali á búnaði að daglegum rekstri

Verkefninu er ekki lokið þegar vélin er komin á gólfið. Það er lokið þegar hún skilar því sem hún á að skila í daglegum rekstri.

Val á búnaði

Við förum yfir pláss, áætluð afköst og rekstrarform og veljum búnað sem stenst álagið — ekki þann stærsta sem kemst fyrir.

Innflutningur og uppsetning

Pantanir, flutningur og tollafgreiðsla, uppsetning á staðnum og gangsetning með framleiðanda þegar þess þarf.

Varahlutir og þjónusta

Aðgangur að varahlutum og tæknilegri aðstoð eftir að búnaðurinn er kominn í rekstur. Niðurtími kostar peninga.

Hafðu samband

Segðu okkur hvað þú ert að skoða og í hvaða rekstri það á að vera. Við komum til baka með tillögu að búnaði og verði.

Til baka í ráðgjöfina
TengiliðurPáll Mar Magnússon
Netfang[email protected]Sími+354 843 8003